Innlent

Bílvelta í Ísafjarðardjúpi

Bílvelta varð í Ísafjarðardjúpi í nótt og er talið að ökumaður hafi misst stjórn á bifreiðinni í lausamöl. Þrennt var í bílnum og sakaði engan að sögn lögreglu. Þá var lögreglan á Ísafirði kölluð að Stekkjargötu í Hnífsdal undir morgun en þar hafði verið kveikt í vörubíl. Hann er talsvert mikið skemmdur og sökudólgurinn er ófundinn. Fréttavefur Bæjarins besta greinir frá.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×