Innlent

Bílvelta á Hellisheiði í morgun

Fólksbifreið valt út af veginum í Hveradalabrekku á Hellisheiði um klukkan hálfsjö í morgun. Að sögn lögreglu virðist sem ökumaðurinn, eldri karlmaður, hafi misst stjórn á bifreiðinni og endaði hún á hvolfi utan vegar. Maðurinn, sem var einn í bílnum, var fluttur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi en meiðsl hans reyndust ekki alvarleg og fékk hann að fara heim að lokinni skoðun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×