Deilur um vegamót á Suðurlandi 17. júlí 2004 00:01
Vegagerðin ætlar ekki að gera hringtorg við Landvegamót á Suðurlandi þrátt fyrir að það kosti jafnmikið og þær framkvæmdir sem þegar eru hafnar. Vegagerðin segir umferð ekki nógu mikla um hliðarvegina en verslunareigandi við gatnamótin hafnar því og segir hringtorg nauðsynlegt. Slys hafa verið tíð á þessum gatnamótum og eitt alvarlegasta slysið varð í ágúst 2002 þegar þrjár konur létust. Söluskálinn sem þarna er byrgir sýn þeim sem koma niður Landveginn úr Galtalæk og ætla inn á þjóðveginn. Húsið verður rifið og annar skáli staðsettur fjær gatnamótunum. Nú er þröngt um þá sem stoppa og taka bensín. Meðal þess sem verið er að gera er að búa til aðreinar frá þjóðveginum, eyja verður sett á milli akreina á einum stað og Ásvegur verður færður aðeins austar. Lofuðum framkvæmdum var frestað í fyrra en þá var aðeins fimm milljónum úthlutað til verksins. Svanur Bjarnason, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Suðurlandi, segir að framkvæmdirnar nú kosti 24 milljónir og því til viðbótar komi 5-6 milljónir í færslu Ásvegs austar til að losna við krossvegamót. En ekkert verður hringtorgið, þrátt fyrir orðrómað öryggi þeirra. Svanur segir hringtorgið vera einn kostinn sem skoðaður hafi verið en það hefði kostað á bilinu 25-30 milljónir. Hann segir Vegagerðina hafa álitið að hringtorgið ætti ekki heima þarna þar sem umferðin væri ekki svo mikil á hliðarvegina, Ásveg og Landveg, og umferðin myndi stoppast nokkuð á hringveginum. Bergur Sveinbjörnsson, verslunareigandi við Landvegamót til sautján ára, slær á þessar útskýringar og segir umferð mjög mikla upp í Galtalæk og sumarhúsabyggðinar þar í kring. Hann efast líka um kostnaðartölurnar sem Svanur nefnir.
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira