Innlent

Veiðigjald verður þungur baggi

"Mér finnst ekki líklegt að með þessu gjaldi náist almenn sátt um sjávarútveginn," segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Síldarvinnslunnar og formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna. Með sérstöku sex prósenta veiðigjaldi sem tekið verður af sjávarútvegsfyrirtækjum frá september næstkomandi standa vonir til að komið verði að einhverju leyti til móts við þá sem halda því fram að stórir útgerðarmenn maki krókinn úr auðlind sem sé sameiginleg eign allrar þjóðarinnar. "Þetta mun einnig reynast skuldsettari fyrirtækjum þungur baggi enda mun þetta gjald hækka í framtíðinni. Fyrirtækin eru misvel stæð eins og í öðrum rekstri og engum blöðum um það að fletta að sex prósent af tekjum hvers fyrirtækis er dágóð upphæð." Ráðgert er að 900 milljónir króna bætist við í ríkissjóð með nýju veiðigjaldi sem sett verður á í haust. Til grundvallar gjaldinu verður aflaverðmæti útgerðar að frádregnum rekstrar- og launakostnaði og mun hlutfallið verða sex prósent á þessu ári. Mun gjaldið hækka í framtíðinni í allt að tíu prósent. Engin aukagjöld falla þó á útgerðaraðila þetta árið því greitt verður sama gjald og hefur hingað til verið greitt vegna annarra skuldbindinga á borð við greiðslur til veiðieftirlits. Þær falla alfarið niður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×