Innlent

Leikarar framtíðarinnar

Leikarar framtíðarinnar létu ljós sitt skína á nýja sviði Borgarleikhússins í dag þar sem sýndur var afrakstur leiklistarnámskeiðs Borgarleikhússins og Draumasmiðjunnar. Foreldrar ungmennanna og aðstandendur fylgdust með tilþrifunum í dag og urðu ekki fyrir vonbrigðum.  Það var eftirvænting í loftinu þegar foreldrar og ættmenni leikaranna ungu streymdu í sæti sín í Borgarleikhúsinu í dag. Þegar áhorfendur voru sestir og salurinn orðinn fullur tók leikgleðin svo völd. Hitað var upp með æfingum af ýmsu tagi og síðan var farið í þrautakóng. Þar voru hinar ýmsu kúnstir viðhafðar og flestar á færi allra, þó að ekki hafi allir náð að leika eftir armbeygjur með klappi sem einn þrautakóngurinn bauð upp á. Að þrautakóngi loknum hófst svo sýningin sem var afrakstur vikulangs námskeiðs sem Borgarleikhúsið og Draumasmiðjan standa að. Af leikhæfileikum var greinilega nóg í Borgarleikhúsinu í dag og sögðust tvær ungar stúlkur sem tóku þátt í leikritinu, Bryndís Stefánsdóttir og Unnurt Eggertsdóttir, hafa haft mjög gaman af námskeiðinu og sýningunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×