Smávægilegar tafir við Kárahnjúka 16. júlí 2004 00:01
Sprungur í stíflustæðinu við Kárahnjúka hafa tafið framkvæmdir um fáeinar vikur en talsmaður Impregilos segir að vandinn verði leystur innan tíðar. Forstjóri Landsvirkjunar lýsir ánægju með hve framkvæmdum miðar almennt vel. Allt það svæði sem fréttamenn og talsmenn Landsvirkjunar stóðu á í gær, í kynningarferð í boði Landsvirkjunar, fer undir vatn. Þar mun koma lón á stærð við sjálft Lagarfljót. Stíflan mun bera ægishjálm yfir allar aðrar stíflur á Íslandi. Sandfell mun verða að eyju og vatnsborð Jöklu mun hækka um 200 metra. Almennt hafa framkvæmdir gengið afar vel en sprungur og gljúpur jarðvegur, þar sem stíflan er að rísa, tefja fyrir. Gianni Porta, verkefnisstjóri ítalska verktakans, hefur þó engar áhyggjur og segir frávikin svo lítil að hægðarleikur verði að vinna þau upp. Hann segir Impregilo hafa staðið frammi fyrir ýmsum óvæntum aðstæðum en þeir hafi þegar gripið til viðeigandi ráðstafana. Gert er ráð fyrir að farið verði að safna vatni í lónið árið 2006 en nú er Jöklu veitt fram hjá gegnum sérstök göng. En þetta er ekki í fyrsta sinn sem þetta landssvæði við Kárahnjúka fer undir vatn. Sigurður Arnalds, kynningarstjóri á svæðinu, segir að á næst síðustu ísöld, eða fyrir um 250 þúsund árum, hafi gosið undir jöklinum og þá hafi Kárahnjúkurinn orðið til. Bæði eftir þá ísöld, og síðustu ísöld sem lauk fyrir um 10 þúsund árum, hafi landsvæðið við hnjúkinn verið hindrun fyrir vatnið og því myndast jökullón frá honum og inn að jöklinum. Jökla hafði rutt sér leið niður í Hamrahvammagljúfur um 1000-2000 árum fyrir Krist en þá tæmdist jökullónið. Í Valþjófsstaðafjalli gengur risaborum vonum framar að éta sig gegnum bergið en þar inni verður stöðvarhús virkjunarinnar og vatninu veitt gegnum göng samkvæmt flóknum formúlum verkfræðinga. Gianni Porta segir alla borvinnu ganga eftir áætlun og að í næstu viku verði annar bor tekinn í notkun. Hann segir þá viðbót sannarlega auka afköstin. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, var að koma í göngin í fyrsta sinn í gær. Hann segir allar áætlanir hafa staðist eins og stafur á bók, þá 7-8 mánuði sem verkið hefur staðið yfir. Hann segir nánast bara eftir að bóna gólfið. Myndir og frásagnir segja aðeins hálfa sögu. Maður verður að sjá stíflugerðina við Kárahnjúka með eigin augum til að skilja umfangið - og þangað liggur góður malbikaður vegur auk þess sem ágæt sýning er í Végarði sem er opin almenningi.
Fréttir Innlent Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Fleiri fréttir „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Sjá meira