Innlent

Alvarlegar villur í skýrslunni

Fjármálaráðuneytið segir veigamiklar og alvarlegar villur vera í skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga síðasta árs. Ríkisendurskoðun notist við marklausan samanburð sem brengli alla umfjöllun í skýrslunni. Ríkisendurskoðun gerði alvarlegar athugasemdir við hve margir fjárlagaliðir fóru fram úr fjárheimildum í skýrslu sinni og gagnrýndi ráðuneyti og ríkisstofnanir harðlega fyrir ónákvæmni í áætlanagerð. Fjármálaráðuneytið situr þó ekki þegjandi undir þeim ásökunum og gerir ýmsar athugasemdir við skýrsluna, m.a. þær að tölur sem stuðst er við séu rangar og að gefin sé villandi mynd af afkomu ríkissjóðs með því að blanda saman rekstrar- og greiðslugrunni stofnana. Í því sambandi bendir ráðuneytið á að munað geti verulegum fjárhæðum hjá einstaka stofnunum. Ellefu stofnanir eru teknar sem dæmi og segir ráðuneytið afkomu þeirra á síðasta ári vera alls 56 milljónum hagstæðari en fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Þessum athugasemdum fjármálaráðuneytisins hefur verið komið á framfæri við Sigurð Þórðarson ríkisendurskoðanda. Sigurður sagði í samtali við fréttastofu í dag að von væri á athugasemdum við athugasemdirnar eftir helgi. Deilan verður þó ekki til lykta leidd fyrr en endanlegt uppggjör liggur fyrir með ríkisreikningi. Þá kemur í ljós hvor hefur komist nær réttri niðurstöðu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×