Innlent

Annarri útgáfu skýrslunnar lokið

Skattrannsóknarstjóri hefur lokið við aðra útgáfu frumskýrslu vegna skattrannsóknar á Baugi og tengdum félögum. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa frest til mánudags til að skila inn athugasemdum við hana. Fyrsta útgáfa frumskýrslunnar var afhent forsvarsmönnum fyrirtækjanna í byrjun júní. Eftir að þeir höfðu skilað inn athugasemdum við hana útbjó skattrannsóknarstjóri aðra útgáfu skýrslunnar. Skúli Eggert Þórðarson, skattrannsóknarstjóri, og Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, vildu ekkert tjá sig um málið við fréttastofu þegar falast var eftir upplýsingum um málið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×