Innlent

Neysla gosdrykkja minnkar

Neysla landsmanna á sykruðum gosdrykkjum hefur dregist saman um rúmlega 36 þúsund lítra sl. tólf mánuði, samanborið við síðustu tólf mánuði þar á undan, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Þar er stuðst við Nielsen-sölutölur frá Markaðsgreiningu ehf., dótturfélagi IMG. Neysla á mest selda sykraða gosdrykknum, Coke, hefur dregist saman um 2,3% á þessu tímabili. Á sama tíma hefur hins vegar orðið veruleg aukning á neyslu sykurlausra gosdrykkja og vatns. Neysla sykurlausra gosdykkja hefur aukist um rúmlega 18% en neysla á söluhæsta sykurlausa gosdrykknum, Pepsí Max, hefur aukist um ríflega 58%. Neysla á vatni hefur aukist um rúm 12%. Vegna frétta um um aukna líkamsþyngd Íslendinga undanfarin misseri segir Ölgerðin þessar niðurstöður sýna að gosdrykkjaneysla verður ekki sökuð um þyngdaraukninguna. Í fréttatilkynningunni segist talsmaður fyrirtækisins því taka heilshugar undir mótmæli Samtaka iðnaðarins gegn hugmyndum Lýðheilsustöðvar þess efnis að leggja sem samsvarar tíu króna viðbótarskatti á hvern lítra af gosdrykkjum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×