Innlent

Torfærutröll föst í tolli

Sex norskir torfærujeppar sitja fastir í tolli í Reykjavík og því verður ekkert af fyrirhugaðri jeppakeppni milli Íslendinga og Norðmanna sem fram átti að fara í dag. Eru forsvarsmenn keppninnar ævareiðir þar sem mikið hefur verið haft fyrir að koma slíkri keppni á og reyndist yfirvöldum ómögulegt að veita undanþágur þrátt fyrir að fyrirhugað væri að bílarnir færu aftur til Noregs á mánudaginn. "Við reiknuðum út að gjöld og tryggingar vegna þessara bíla yrðu um sjö til átta milljónir króna og fengum jákvætt svar frá okkar banka," segir Garðar Gunnarsson, einn aðstandenda keppninnar. "Síðan kemur í ljós að tollstjóri vill 25 milljónir króna og við höfðum ekki aðgang að slíku fjármagni. Heimild er til að veita undanþágu vegna sérstakra aðstæðna en fjármálaráðuneytið vildi ekkert fyrir okkur gera." Um talsverðan viðburð var að ræða og voru auk norsku keppendanna hingað komnir blaðamenn frá fjórum þjóðum sem ætluðu sér að skrifa um atburðinn. Garðar telur ljóst að þetta verði ekki reynt aftur í bráð enda sé um hreina hneisu að ræða að greiða 25 milljónir króna í tryggingu vegna tveggja daga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×