Innlent

Hvolfdi í lendingu

Lítilli einkaflugvél af gerðinni Piper Super Cub hlekktist á í lendingu og hvolfdi við afleggjara skammt frá Hjálparfossi í Þjórsárdal í morgun. Talið er að einungis flugmaðurinn hafi verið um borð og mun hann ekki hafa slasast. Þetta kemur fram á fréttavef Morgunblaðsins. Tilkynning um óhappið barst lögreglunni á Selfossi klukkan 9:35 í morgun. Fulltrúar Rannsóknarnefndar flugslysa (RNF) eru komnir á vettang. Varðstjóri hjá lögreglunni kvaðst rétt í þessu ekki geta sagt til um hvað fór úrskeiðis; lögreglumenn frá Selfossi væru enn á vettvangi við athuganir. Meðfylgjandi mynd er af flugvél svipaðrar gerðar og þeirrar sem hvolfdi í Þjórsárdal.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×