Innlent

Löggæslukostnaður hækkar mjög

Löggæslukostnaður á Landsmóti hestamanna hefur farið hækkandi undanfarin ár . Kostnaðurinn á landsmótinu á Hellu í ár var 2,7 milljónir króna en var 2,5 milljónir króna á Vindheimamelum fyrir tveimur árum. Á landsmótinu sem haldið var í Reykjavík árið 2000 var löggæslukostnaðurinn hins vegar 250 þúsund krónur eða tæplega ellefu sinnum lægri en á Hellu. Þetta kemur fram á fréttavef Suðurlands í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×