Innlent

Samdráttur milli ára

Fiskafli hjá íslenskum fiskiskipum var talsvert minni í júní en hann var á sama tíma fyrir ári síðan. Samkvæmt tölum Fiskistofu var aflinn tæp 180 þúsund tonn en það er minnkun um ellefu þúsund tonn milli ára. Sé aflinn skoðaður frá janúar til júní versnar staðan enn en um 83 þúsund tonna samdrátt er að ræða. Botnfiskafli dróst saman um rúm sex þúsund tonn frá júní í fyrra en kolmunnaaflinn jókst til muna úr 55 þúsund tonnum í rúm 91 þúsund tonn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×