Innlent

Verkáætlun tafist um nokkrar vikur

Gljúpur jarðvegur hefur tafið verkáætlun við gerð aðalstíflu við Kárahnjúka að því er fram kom á kynningarfundi með Landsvirkjun fyrir fjölmiðla sem haldinn var í gær. Áætlunin hefur raskast um einhverjar vikur en mönnum bar ekki saman um hversu margar. Gianni Porta, yfirmaður framkvæmda fyrir Impregilo, sagðist fullviss um að tækist að vinna upp glataðan tíma og öllum lykildagsetningum náð en með því á hann við þau verk sem klára þarf áður en hafist er handa við önnur til að tefja ekki fyrir verkinu. "Á heildina litið hefur framkvæmdin gengið vel," sagði Porta og undir það tóku forsvarsmenn Landsvirkjunar. "Upphaf framkvæmda er það mikilvægasta í öllum slíkum verkum," sagði hann. "Allt sem byrjar vel endar vel." Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, sagði flesta verkþætti við gerð virkjunarinnar vel á áætlun og aðra á undan áætlun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×