Innlent

Hitaveita Hvergerðinga seld

Hitaveita Hvergerðinga var seld Orkuveitu Reykjavíkur fyrir 260 milljónir. Meirihluti Samfylkingar og Framsóknar í bæjarstjórn samþykkti söluna á fundi í gær. Þorsteinn Hjartarson, forseti bæjarstjórnar, segir tryggt að Hvergerðingar greiði sambærilegt verð og Reykvíkingar fyrir þjónustu Orkuveitunnar. Þá haldi Hvergerðingar eftir eignum Hitaveitunnar og þjónusta við bæjarbúa aukist. "Þeir munu leggja ljósleiðara og koma að ýmsum umhverfisverkefnum í Ölfusdal til dæmis og á hverasvæðinu." Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarfulltrúi minnihluta Sjálfstæðisflokks í Hveragerði, segir einu breytingar frá fyrri umræðu sölunnar vera að réttarstaða þeirra sem reka einkahitaveitu í Hveragerði hafi verið tryggð. Að öðru leyti séu hagsmunir Hvergerðinga gróflega fyrir borð bornir. "Það er verið að selja hana á alltof lítinn pening. Samningurinn er algerlega óásættanlegur og ég tel að verðmætustu eign okkar Hvergerðinga sé þarna fórnað fyrir ansi lítið."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×