Innlent

Símamaður rekinn vegna netspjalls

Starfsmaður í bilanaþjónustu Landssímans var afkastamikill á spjallvefnum malefnin.com. Hann lagði að meðaltali 40 innlegg á síðuna á dag, en var rekinn á þriðjudaginn eftir 23 ára starf. "Ég er fokreiður," sagði Þráinn Stefánsson, sem gekk undir nafninu visir, á vef málefnanna, þegar hann undirbjó sig undir að hreinsa af skrifborði sínu. Hann taldi brottreksturinn tengjast skrifum sínum á malefnin.com. Meira um málið í DV í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×