Innlent

Stærsti steypuklumpur landsins

Vinna við stærsta steypuklump Íslandssögunnar er hafin við Kárahnjúka. Í þennan eina klump þarf álíka mikla steypu og í fjögur hundruð einbýlishús. Við Kárahnjúka er búið að setja upp afkastamestu steypustöð landsins. Steypubílar bíða í röðum og risastórir malarar og flokkarar búa til malarefni af mismunandi kornastærð sem nota á í stífluna. Þarna er að hefjast mesta steypuvinna sem sögur fara af hérlendis. Steypa á upp steypuklump þvert fyrir gljúfrið og mun hann ná frá botni gljúfursins og upp á gljúfurbarmana. Hann verður um 40 metra hár, um 120 metra breiður og allt að 20 metra þykkur. Steypuklumpurinn verður hluti af hinni 200 metra háu Kárahnjúkastíflu en hann er reyndar kallaður táveggur og verður neðst í stíflunni vatnsmegin. Til að gera sér grein fyrir stærð klumpsins er hægt að ímynda sér Hús verslunarinnar og margfalda með fjórum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×