Upplýsingum safnað en ekki notaðar 15. júlí 2004 00:01
Viðkvæmum persónuupplýsingum um flugfarþega á leið til Bandaríkjanna verður ekki safnað saman. Kerfið þótti ekki skilvirkt auk þess sem persónuréttindi farþega voru sögð fótum troðin. Icelandair ætlaði að láta upplýsingarnar í té frá og með lokum þessa mánaðar. Bandarísk lög skylda flugfélög sem fljúga til og frá Bandaríkjunum að veita bandarískum yfirvöldum aðgang að farþegaupplýsingum í bókunarkerfum þeirra, en meðal þeirra upplýsinga eru nafn og heimilisfang, fæðingardagur og ár, símanúmer og greiðslumáti. Til viðbótar verða flugfélög að láta bandarísku Tolla- og landamærastofnunina vita um séróskir farþega vegna veikinda, fötlunar og mataræðis, svo að dæmi séu tekin. Þetta var gert í nafni flugöryggis og var stefnt að því að nota upplýsingarnar til að draga úr líkum á hryðjuverkum. Bandaríska tolla- og landamærastofnunin átti að taka á móti upplýsingunum, en gæti deilt þeim með öðrum öryggisstofnunum til þess að koma í veg fyrir hryðjuverk og annað glæpsamlegt athæfi. Icelandair er eitt þeirra flugfélaga sem þarf að láta bandarískum yfirvöldum í té upplýsingar, og frá og með þeim 28. verður við því orðið. Samkvæmt yfirlýsingu frá flugfélaginu hefur Icelandair haft samráð við íslensk stjórnvöld, þar á meðal Utanríkisráðuneytið og Persónuvernd, um öryggi upplýsinganna og hyggst utanríkisráðuneytið tryggja íslenskum ríkisborgurum sömu vernd um persónuupplýsingar og Evrópusambandið samdi um fyrir evrópska ríkisborgara nýlega. Allar þessar upplýsingar áttu að fara í stórt tölvukerfi, einskonar miðlægan gagnagrunn, til úrvinnslu. En nú virðist sem stóri bróðir viti ekki almennilega hvað gera á við allt það gagnamagn sem yfir hann streymir, auk þess sem vafi hefur frá upphafi leikið á því, hvort að þessi háttur kæmi að nokkru gagni, þar sem hryðjuverkamenn þyrftu í raun ekki að gera meira en að verða sér út um fölsuð skilríki og greiðslukort til að komast óséðir í gegnum smásjánna. Því hefur nú verið hætt við allt saman. Mannréttindasamtökum og fjölda þingmanna þótti ennfremur forvitnast um of um einkahagi flugfarþega. Kerfið, sem nefnist CAPPS 2, átti að bera upplýsingarnar um farþegana við skrá um hryðjuverkamenn og annað hættulegt fólk. Út frá því átti að meta hugsanlega hættu, sem stafaði af flugfarþegunum og í framhaldinu meina þeim að koma til Bandaríkjanna, taka þá til nánari skoðunar eða láta þá alveg í friði. Engu að síður hélt Ridge því opnu, að kerfið yrði þróað áfram undir öðru nafni, og segja þeir sem til þekkja það næsta víst. Og þeir bæta því við að í raun sé söfnun þessara upplýsinga ekkert nýtt, yfirvöld vestan hafs hafi til að mynda árum saman fengið farþegaskrár frá flestum flugfélögum, auk þess sem farþegar þurfi að fylla út nákvæma bleðla fyrir útlendingaeftirlitið. Það sem við eigi að bætast í lok mánaðarins sé minniháttar og ekki svo ýkja mikilvægt, eins og upplýsingar um greiðslukort, málsverð um borð og fleira í þeim dúr. En þrátt fyrir að CAPPS 2 hafi verið slegið af, verður upplýsingunum samt safnað, ef vera kynni nýtt nafn yrði komið á kerfið í næsta mánuði. --
Fréttir Innlent Mest lesið „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent „Varð að martröð“ Innlent Fleiri fréttir „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Sjá meira