Innlent

Skortur á ánamöðkum

Vegna þurrka á landinu í sumar, er mikill skortur á maðki fyrir stangveiðimenn. Maðkurinn hefur því fimmfaldast í verði. Sumarið er ekki góður tími fyrir ánamaðka. Þeir eru rifnir upp úr jörðinni, tugþúsundum saman, þræddir upp á öngla, og hent út í vatn, þar sem hungraðir fiskar ráðast á þá, og éta þá upp til agna. Þegar rignir leita ánamaðkar upp á yfirborð jarðar, og það er þá sem þeir eru gripnir. Undanfarnar fjórar vikur hefur rignt mjög lítið á landinu, og ánamaðkarnir halda sig því neðanjarðar, veiðimönnum til sárrar gremju. Þetta hefur orðið til þess að verð á ánamöðkum hefur nær fimmfaldast. Verð á laxamaðki í vor, var um um 35 krónur stykkið, en er nú komið upp í 170 krónur, ef þá er yfirleitt hægt að fá þetta vinsæla fiskafóður. Eitthvað mun vera um að ánamaðkar séu sendir í flugi milli landshluta, og bætist þá flutningskostnaður við verðið. Þetta mætti kannski kalla hefnd ánamaðkanna, fyrir áratuga ofsóknir, og vonandi er hún þeim sæt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×