Innlent

Búið að laga explorer

Gísli Ólafsson, tölvusérfræðingur, hjá Microsoft, segir að búið sé að loka fyrir gatið sem tölvuþrjótar gátu notfært sér til þess að komast inn í tölvur sem nota Microsoft Explorer, vafra. Bandaríska heimavarnarráðuneytið sendi frá sér tilkynningu þar sem ekki var mælt með notkun Microsoft Explorer vafrara, þar sem varnarkerfi hans væri gallað. Gísli Ólafsson segir að nú geti tölvunotendur sótt sér nýja vörn, á Microsoft vefnum. Viðvörunin sem gefin hafi verið út hafi í raun komið frá Microsoft en fyrirtækið gaf út viðvörun fyrir nokkrum dögum vegna þess að það væru ákveðnar öryggisholur sem ekki væri búið að laga. Fólk hafi því verið beðið um að fara varlega. Í fyrradag hafi síðan komið lagfæringar við þessum öryggisholum og nú hvetur Microsoft fólk til að uppfæra vélar sínar. Um leið ættu þeir að vera nokkuð öryggir. Þessi hola sem hafi fundist fyrir tveimur vikum hafi þó verið mjög alvarleg því hún gat leyft öðrum að taka yfir tölvu viðkomandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×