Innlent

Mikið annríki í sjúkraflugi

Mikið annríki hefur verið í sjúkraflugi frá Akureyri með vélum Flugfélags Íslands undanfarna daga. Í morgun fóru sjúkraflutningamaður og tveir læknar með Metró vél Flugfélags Íslands til Kulusuk og sóttu slasaðan dreng sem fluttur var með þyrlu frá Angmassalik. Sex flug voru farin föstudaginn 9. júlí og fjögur flug mánudaginn 12. júlí. Mánudaginn 5. júlí voru tvö flug til Grænlands. Annað til Kulusuk og hitt til Constable pynt. Frá báðum þessum stöðum þarf að fara með þyrlu til að sækja sjúklingana. Heildarfjöldi sjúkrafluga frá Akureyri það sem af er árinu er 170.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×