Innlent

Reknir yfir fjárheimildum

Af 520 fjárlagaliðum ríkisins á síðasta ári voru 210 reknir yfir fjárheimildum í fjárlögum. Þar af fóru 108 fjárlagaliðir meira en 4 prósent fram úr fjárheimildum, sem eru þau viðmiðunarmörk, sem getið er um í reglugerð fjármálaráðuneytisins. Ríkisendurskoðun gerir alvarlegar athugasemdir við hve margir fjárlagaliðir fara fram úr fjárheimildum í nýrri skýrslu. Þar kemur fram að flestar stofnanir fara umfram fjárheimildir hjá heilbrigðisráðuneyti og menntamálaráðuneyti. 63 af 122 stofnunum heilbrigðisráðuneytis voru með neikvæðan höfuðstól um síðustu áramót og 44 af 103 stofnunum menntamálaráðuneytis fóru fram úr fjárheimildum. Ástandið er best hjá forsætisráðuneyti og viðskiptaráðuneyti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×