Innlent

Þyrla sækir sjúkan mann

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, sótti veikan mann í ítalskt skemmtiferðaskip, Costa Allegra, um 120 sjómílur norðaustur af Langanesi í gærkvöld. Hringt var á Landspítalann rétt fyrir klukkan 7 og tilkynnt að 83ja ára gamall maður um borð hefði fengið heiftarlegar blóðnasir og innvortis blæðingar í kjölfarið. Ákveðið var að sækja manninn á þyrlu Landhelgisgæslunnar og kom hún að skipinu um klukkan 11, eftir að hafa sótt eldsneyti á Akureyri. Þyrlan lenti svo við Landspítalann í Fossvogi þegar klukkan var korter gengin í eitt í nótt. Maðurinn var lagður inn til aðhlynningar og er líðan hans orðin betri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×