Innlent

Leitað að lífi á Mars

Lofttegundir sem fundist hafa á plánetunni Mars benda til að þar gæti fundist líf. Sérfræðingur frá NASA geimferðarstofnuninni segir að niðurstöður rannsókna sem fari þar fram, eigi ekki eftir að valda fólki vonbrigðum. Síðustu daga hefur farið fram ráðstefna í Háskólabíói um byggilega hnetti. Í dag var sjónum beint að Mars og nýjustu niðurstöðum úr rannsóknum á plánetunni dularfullu. Til máls tóku margir af helstu sérfræðingum í rannsóknum á Mars og var það samdóma álit þeirra að merkilegra tíðinda væri að vænta af reikisstjörnunni á næstu misserum. Einn af fyrirlesurum dagsins var James Garvin, sem er yfirmaður í rannsóknum NASA á Mars. Hann segir að vísindamenn séu að leita að lífi á öðrum hnöttum og telja Mars líklegasta staðinn. Til séu steinar á Mars sem hafa orðið til í vatni líkt og eigi sér stað á Íslandi þegar vatn í eldfjöllum þorni upp. Þá hafi fundist gasefni í andrúmslofti Mars sem lífverur gætu hafa búið til, þeir séu þó ekki vissir í sinni sök en þetta efni bendi til þess að þar sé að finna líf. Hann telur Mars vera svarið við mörgum spurningum. Þar séu fimm för að störfum, eitt frá Evrópu og fjögur frá NASA. Nú sé beðið eftir niðurstöðum en margir komi til Íslands því landið eigi ýmislegt sameiginlegt með Mars.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×