Innlent

Uppbygging á Reyðarfirði

Trésmiður frá Akureyri gleðst yfir uppbyggingunni á Reyðarfirði vegna álvers. Hann tryggði sér byggingalóðir á svæðinu átta mánuðum áður en skrifað var undir samninga við Alcoa. Eigandi trésmíðaverkstæðis Sveins Heiðars á Akureyri veðjaði á réttan hest þegar hann sótti um lóðir á Reyðarfirði fljótlega eftir að hann frétti af því að Alcoa kæmi að byggingu álvers eftir að Norsk Hydro hvarf úr sögunni. Hann segir að þeir hafi komið á svæðið átta mánuðum áður en skrifað var undir til að kynna sér hvaða möguleikar væru á byggingu íbúðarhúsa. Vel hafi verið tekið á móti þeim og undirbúningur hafi staðið í tvö ár. Nú er um mánuður liðinn frá því að menn Sveins Heiðars byrjuðu að byggja á fallegu svæði á svokölluðum Kirkjugarðsmel, þar sem útsýni er fallegt yfir kauptúnið og fjörðinn. Húsin eru smíðuð á trésmíðaverkstæðinu á Akureyri, flutt sjóðleiðina austur þar sem þau eru sett saman. Um þrjá daga tekur að gera einbýlishús fokhelt. Eftirspurn er næg en síðast var byggt nýtt íbúðarhús á Reyðarfirði fyrir átta árum. Sveinn segist hafa haft fulla trú á því að byggt yrði á Reyðarfirði eftir að Alcoa kom inn í myndina. Þeir hafi stórt svæði til umráða og ætlunin sé að byggja 70 til 90 íbúðir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×