Innlent

Börnum fækkar á Nesinu

Sterkar vísbendingar eru um að börnum í leik- og grunnskólum Seltjarnarnesbæjar fari verulega fækkandi á næstu árum. Miðað við tölur frá Hagstofu Íslands sést að undanfarin 15 ár hefur fæðingum á Nesinu fækkað umtalsvert. Fram kemur í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum á Seltjarnarnesi að á síðasta ári fæddust. nærri því helmingi færri börn en árin 1989 og 1991. Bæjaryfirvöld lýsa yfir áhyggjum af þessari þróun, því haldi hún áfram getur það leitt til þess að fjölmargar þjónustustofnanir bæjarins, eins og til dæmis grunn- og leikskólar verði sífellt óhagkvæmari í rekstri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×