Breytir engu um afstöðu 14. júlí 2004 00:01
Flestir hagsmunaaðilar sem koma fyrir allsherjarnefnd Alþingis í dag telja nýtt fjölmiðlafrumvarp engu breyta um afstöðu þeirra til laganna. Blaðamannafélag Íslands gagnrýnir yfirlýst áform ríkisstjórnarinnar um að hægt verði að kjósa um ný fjölmiðlalög í þingkosningum eftir 3 ár. Allsherjarnefnd Alþingis heldur áfram umfjöllun um fjölmiðlafrumvarpið, en í dag er komið að því að fá hagsmunaaðila á fund nefndarinnar. Fundur hófst klukkan 9, en þá komu fulltrúar frá Norðurljósum og Ríkisútvarpinu og gáfu álit sitt. Að þeirra mati breytir nýtt fjölmiðlafrumvarp í engu afstöðu þeirra til málsins, eins og hún var þegar fyrra frumvarp var samþykkt í maí. Þá studdi Ríkisútvarpið málið, en yfirmenn Norðurljósa ekki. Sigurður G. Guðjónsson, forstjóri Norðurljósa, segir nýja frumvarpið enn verra fyrir fyrirtækið, því samkvæmt því falla öll útvarpsleyfi úr gildi árið 2007, en í nýsamþykktum lögum áttu þau sum hver að renna út á lengri tíma. Aðrar útvarps- og sjónvarpsstöðvar eru nú á fundi allsherjarnefndar, en eftir hádegið koma fulltrúar frá starfsmannafélagi Fréttar og frá Blaðamannafélaginu. Stjórn Blaðamannafélagsins barðist mjög gegn setningu laganna í vor og er álit Blaðamannafélagsins nú efnislega það sama, enda telur stjórn félagsins að nánast um sama frumvarp sé að ræða. Þá gagnrýnir Blaðamannafélagið þá hugmynd ríkisstjórnarinnar, að almenningur geti kosið um lögin í næstu þingkosningum. Í áliti Blaðamannafélagsins er bent á það, að félagið geti ekki með nokkru móti tekið afstöðu í þingkosningum, því þær snúist um flokka. Hinsvegar gæti félagið - líkt og aðrir hagsmunaaðilar - tekið afstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu, sem færi fram eingöngu um þetta mál.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira