Hafði þrjá tíma til að fela byrði 14. júlí 2004 00:01
Maðurinn sem grunaður er um að vera valdur að hvarfi indónesískrar barnsmóður sinnar, er talinn hafa haft þrjár klukkustundir til þess að koma byrðinni fyrir, eftir að til hans sást bera eitthvað þungt út úr íbúð sinni, á sunnudagsmorgun. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar er lögreglan sannfærð um að Sri Rahmawati hafi verið myrt, og lík hennar falið. Meðal annars þess vegna hefur ekki verið gerð skipuleg leit að henni. Mikið blóð fannst í íbúð og bíl mannsins sem hefur verið handtekinn vegna málsins, og voru sýni af því send til DNA rannsóknar til Noregs. Sýnin bárust ekki þangað fyrr en síðastliðinn föstudag, og því einhverjir dagar áður en niðurstöður berast úr rannsókninni. Sjónarvottur hefur sagt lögreglunni að hann hafi séð hinn handtekna bera þunga byrði út úr íbúð sinni, á sunnudagsmorgun, og á því sem hann hafi séð, sé hann viss um að það hafi verið mannslíkami. Sjónarvotturinn segir að þetta hafi verið um hádegisbilið, og samkvæmt heimildum fréttastofunnar sást maðurinn aftur um þrjúleytið, í stórmarkaði. Á þeim tíma getur hann hafa farið um stórt svæði til þess að fela byrði sína. Hinn handtekni heldur fast við framburð sinn um að hann sé ekki valdur að hvarfi Sri Ramawati. Lögreglan vonar að þegar niðurstöðurnar berist frá Noregi muni hann sjá að öll sund séu lokuð, og vísa á sambýliskonu sína, fyrrverandi.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira