Innlent

Látlausir skjálftar

Látlausir jarðskjálftar hafa verið í Fagradalsfjalli, milli Grindavíkur og Krýsuvíkur, síðan á sunnudag. Veðurstofan segir að hrinan geti annað hvort fjarað út eða færst í aukana og skjálftarnir orðið stærri. Skjálftarnir hófust á sunnudagseftirmiðdag, og hafa staðið látlaust síðan. Hjá Veðurstofunni fengust upplýsingar að smáskjálftar séu margir á hverri klukkustund, og svo komi öðru hvoru mun stærri skjálftar. Sá stærsti, hingað til, var 2,7 á Richter, og varð hans vart í nærliggjandi bæjum. Þetta er þekkt skjálftasvæði. Þarna eru misgengissprungur á hreyfingu og ómögulegt að segja um framhaldið. Skjálftarnir gætu hjaðnað, eða rifið sig upp og orðið stærri, það fer eftir þenslunni í sprungunum. Veðurstofan segist ekki sjá nein sérstök merki um að eitthvað meiriháttar sé í uppsiglingu. Þeir fylgist áfram með svæðinu, til þess að sjá hverju fram vindur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×