Innlent

Maðurinn alvarlega slasaður

Maðurinn, sem ekið var á í Ártúnsbrekkunni í nótt, er alvarlega slasaður og í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi. Komið var að honum meðvitundarlitlum á þriðja tímanum í nótt, en ökumaður bifreiðarinnar sem ók á hann, hafði stungið af. Lögregla fann bifreiðina skömmu síðar og handtók mann, sem er grunaður um að hafa ekið henni. Hann er enn í haldi lögreglu og er grunaður um ölvun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×