Innlent

Kemur til greina að fella lögin

Jónína Bjartmarz, þingmaður Framsóknarflokksins í allsherjarnefnd Alþingis, telur vel koma til greina að fella fjölmiðlalögin úr gildi án þess að setja ný lög í staðinn. Þannig gæti Framsóknarflokkurinn leitað sátta í máli, sem komið væri í hnút. Jónína sagði þetta á opnum fundi Framsóknarfélagsins í Reykjavík suður í gærkvöld, en frummælandi á fundinum var Eiríkur Tómasson, lagaprófessor. Hann færði rök fyrir því áliti sínu, að Alþingi væri óheimilt að setja ný fjölmiðlalög í stað þeirra, sem forseti vísaði til þjóðarinnar. Forysta Framsóknarflokksins var gagnrýnd harðlega á fundinum. Fundarmenn voru sammála um að flokksforystan hefði fjarlægst hinn almenna flokksmann í Framsóknarflokknum og ætti að beita sér fyrir því að fjölmiðlafrumvarpið yrði dregið til baka.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×