Innlent

Fáir nota Hjálm

Samkvæmt könnun umferðarfulltrúa Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu eru 69 prósent barna án öryggishjálma þegar þau nota reiðhjól, línuskauta eða hlaupahjól. Sérstaklega virðist áberandi að nánast engir unglingar nota hjálma og hjálmaleysið færist sífellt neðar í aldursstiganum. Flestir gáfu upp það svar að sér þætti það hallærislegt að vera með hjálm þegar þeir voru inntir eftir hjálmleysinu og áberandi var að margir höfðu ekki velt fyrir sér hættunni sem fylgir því að hjóla berhöfðaður. Valgeir Elíasson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir það óviðunandi að aðeins rúmlega 30 prósent barna og unglinga noti hjálm og það verði að bregðast strax við. Hann bendir á ábyrgð foreldra í þessum málum því lögum samkvæmt eiga börn undir fimmtán ára aldri að bera hjálm við hjólreiðar og það sé foreldranna að fylgja því eftir að þau geri það



Fleiri fréttir

Sjá meira


×