Innlent

69% nota ekki hjálm

Sextíu og níu prósent barna og unglinga á höfuðborgarsvæðin nota ekki öryggishjálm þegar þau nota reiðhjól, línuskauta eða hlaupahjól samkvæmt nýrri könnun umferðarfulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Áberandi er að fáir sem engir unglingar nota hjálma. Könnunin var gerð í gær og á föstudaginn og var úrtakið 107 börn og unglingar. Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að áhyggjuefni sé að hjálmleysið sé að færast neðar í aldurstiganum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×