Innlent

Sala hótelherbergja eykst

Sala hótelherbergja í Reykjavík hefur aukist um tíu prósent samkvæmt tekjukönnun Samtaka ferðaþjónustunnar. Samtökin segja þetta góða þróun eftir að tuttugu prósenta aukning varð á framboði í fyrra. Meðalverð hótelherbergja í höfuðborginni hefur hækkað úr 10.500 í 11.200 kr. Samtökin segja þó enn vanta talsvert upp á að ná 90% nýtingunni sem var á árunum 1999-2002. Hins vegar hefur heyrst af miklum afbókunum á hótelum á landsbyggðinni og er vertíðin sögð fara hægt af stað þar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×