Innlent

Hækkun hjá Olís og Esso

Esso og Olís hækkuðu í gærdag verð á 95 oktana bensíni um tvær krónur á lítra en aðrir söluaðilar höfðu ekki hækkað sín verð þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöld. Ástæða hækkunarinnar eru verðhækkanir á olíu á heimsmarkaði. Um tvær vikur eru síðan olíuverð hækkaði til muna erlendis og hefur á þessum tíma hefur það hækkað um tæp 20 prósent. Félögin bíða nú eins lengi og hægt er með hækkanir bæði vegna aukinnar samkeppni en einnig vegna þess að hátt bensínverð á slíkum háannatíma eins og raunin er nú getur dregið úr vilja fólks til að ferðast.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×