Innlent

Virkjun rís eftir rúmt ár

Orkuveita Reykjavíkur skrifaði undir samning um kaup á tveimur 40 MW hverflum, rafölum, eimsvölum og kæliturnum ásamt tilheyrandi búnaði fyrir Hellisheiðarvirkjun í gær. Búnaðurinn er keyptur frá japönsku fyrirtækjunum Mitsubishi Corporation og Mitshubishi Heavy Industries sem og þýska fyrirtækinu Balcke Dürr fyrir 2,77 milljarða. Fyrri vélasamstæðan á að hefja framleiðslu í byrjun september 2006 og sú seinni mánuði síðar. Afköst virkjunarinnar verða 400 MW í varmaafl og 120 MW af rafmagni. Fer tveir þriðji hluti rafmagnsins til Norðuráls.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×