Sást bera eitthvað vafið í plast 12. júlí 2004 00:01
Vitni segist hafa séð til mannsins, sem grunaður er um aðild að hvarfi indónesískrar konu, bera eitthvað vafið inn í plast af heimili sínu á sunnudag fyrir rúmri viku. Lögregla bíður eftir niðurstöðum úr DNA-rannsókn til að staðfesta hvort blóð sem fannst á og við heimili mannsins sé úr konunni. Samkvæmt heimildum fréttastofu sást maðurinn bera eitthvað fyrirferðamikið, sem pakkað var inn í plast, út í jeppa við heimili sitt við Stórholt um hádegisbil á sunnudag, daginn sem konan hvarf. Aðrar heimildir segja að næst sé vitað um ferðir mannins í Kringlunni um þrjúleytið sama dag. Tæknideild lögreglunnar mun hafa fundið mikið blóð við rannsókn á heimili mannsins, í stigagangi hússins og í jeppabifreið mannsins. Þau ummerki virðast benda til þess að voveiflegir atburðir hafi átt sér stað í Stórholtinu. Maðurinn, sem er barnsfaðir og fyrrum sambýlismaður konunnar, hefur þó neitað því að vita nokkuð um afdrif hennar. Bifreiðar í hans eigu hafa verið rannsakaðar og einnig bifreið konunnar sem stóð við Stórholtið þar til tæknideild lögreglunnar tók hana til rannsóknar í gær. Þá hafa DNA-sýni verið send til rannsóknar í Noregi og búist er við að niðurstöður úr þeirri rannsókn berist á morgun. Enn segist lögreglan ekki sjá ástæðu til að lýsa eftir konunni sem nú hefur verið saknað í meira en átta sólarhringa.
Fréttir Innlent Mest lesið Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Sjá meira