Innlent

Of margir fjárlagaliðir fram úr

Ríkisendurskoðun segir það varla ásættanlegt að margar stofnanir og ráðuneyti hafi farið langt fram úr fjárheimildum á undanförnum árum. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga á síðasta ári kemur fram að allt of margir fjárlagaliðir fari ár eftir ár fram úr fjárheimildum og að í nágrannalöndum heyri slíkt til undantekninga. Í skýrslunni segir að sérstaklega þurfi að fara yfir fjárheimildar stofnanna sem hafi safnaði neikvæðri stöðu gagnvart fjárheimildum undanfarin ár og að ljóst sé að margar þeirra geti engan veginn sinnt núverandi starfsemi með áætluðum fjárveitingum. Þar segir jafnframt að markmið stjórnvalda um hóflega aukningu ríkisútgjalda og hallalausan rekstur síðustu ár hafi ekki gengið eftir vegna umframkeyslu hjá ráðuneytum og einstökum stofnunum ár eftir ár. Af sömu ástæðu hafi spár fjármálaráðuenytis um árlega aukningu samneyslu engan veginn staðist. Einnig kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar  að töluvert hafi borið á því að millifært sé á milli rekstarliða sem ekki hafi fengist formleg heimild fyrir frá Alþingi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×