Innlent

Japanskir tökumenn á Jökulsárlóni

Starfsmenn frá japönsku kvikmyndafyrirtæki voru við myndatöku á á Jökulsárlóni um helgina.  Kvikmyndin sem tekin var verður sýnd á heimssýningunni í Japan á næsta ári og verður hún á tjaldi sem er 50 metrar á breidd og 10 metrar á hæð. Þetta kemur fram á vefsíðunni Hornafjörður.is í dag. Myndatakan fór fram inn við jökul sem er um 5 km frá jökulsárbrúnni. Kvikmyndatökumenn fengu bestu hugsanlegu aðstæður, frábært veður og jökullinn skartaði sínu fegursta og voru þeir mjög ánægðir með aðstæður og þá þjónustu sem þeir fengu á lóninu. Myndatökunni lauk um helgina og þegar tökumennirnir yfirgáfu Jökulsárlónið leystu þeir starfsmenn lónsins út með gjöfum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×