Innlent

Áttræður flækti tugi í svikamyllu

Forstjóri á eftirlaunum og fyrrverandi varaþingmaður Alþýðuflokksins hefur fengið fjölda þekktra Íslendinga til að leggja sér til stórfé í því skyni að losa út arf sem hann sagði að sér hefði tæmst í Þýskalandi. Forstjórinn, sem er rúmlega áttræður, lofaði þeim sem lögðu fé að mörkum að þeir myndu fá allt að áttfaldan hagnað af fjárfestingunni. Um 20 manns hafa lagt fé í ævintýrið en peningarnir voru lagðir inn á bankareikninga erlendis. Nú, tveimur árum síðar bólar ekkert á peningunum og margir hafa afskrifað fjármuni sína. Lögreglunni hafa borist ábendingar um málið. Maðurinn er að öllum líkindum fórnarmalm afrískrar svikamyllu og hefur dregið aðra með sér. Sjálfur neitar hann að tjá sig um málið við DV.Ítarleg umfjöllun er um málið í blaðinu í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×