Ekkert athugavert við málatilbúnað 10. júlí 2004 00:01
Jón Sveinsson lögmaður sem sat í starfshópi ríkisstjórnarinnar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu sér ekkert athugavert við málatilbúnað ríkisstjórnarinnar vegna fjölmiðlafrumvarpsins nýja. Jón Sveinsson og Eiríkur Tómasson lagaprófessor eru helstu ráðgjafar Framsóknarflokksins um lögfræðileg málefni. Mismunandi afstaða þeirra bendir til þess að Framsóknarmenn séu klofnir í málinu. Jón Sveinsson segir að samkvæmt þrettándu grein stjórnarskrárinnar feli forseti ráðherrum að framkæma vald sitt. Hann virðist því samstíga til að mynda forsætisráðherra sem telur að aðkoma forseta Íslands að lagafrumvörpum sé einungis formsatriði. Jón Sveinsson segir enn fremur grundvallaratriði að alþingi geti hvenær sem er breytt gildandi lögum. Hann bendir á að þegar ný lög séu sett séu yfirleitt alltaf gildandi lög felld úr gildi með klásúlu í sama lagafrumvarpinu. Hann telur ekki að það þyrfti að fara öðruvísi að þótt forseti hafi beitt synjunarvaldi sínu. Alþingi hafi ekki afsalað sér völdum til að setja lög með neinum hætti þrátt fyrir synjun forsetans. Sá ágreiningur sem er kominn upp vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um að afstýra þjóðaratkvæðagreiðslu með því að draga frumvarpið til baka og leggja það fram í breyttri mynd í sama frumvarpinu, virðist áfram kristallast í því hvort forseti Íslands hafi raunverulegt synjunarvald eða ekki. Hvort hann sé hluti af löggjafarvaldinu og framkvæmdavaldinu eins og önnur grein stjórnarskrárinnar kveður á um eða hvort það beri að túlka þrettándu greinina um að hann feli ráðherrum að framkvæma vald sitt, bókstaflega þannig að skýra beri aðrar greinar stjórnarskrárinnar þar sem fjallað er um valdsvið forsetans með hliðsjón af henni og aðkoma forsetans sé þá einungis formsatriði. Bæði Eiríkur Tómasson og Jón Sveinsson hafa verið helstu ráðgjafar Framsóknarmanna varðandi lögfræðileg álitaefni og því er ágreiningur þeirra athyglisverður með hliðsjón af því. Hvort sjónarmiðið verður ofan á í Framsóknarflokknum hlýtur að koma í ljós á næstu dögum. Jón Sveinsson segir að þetta sé ekki pólitískur ágreiningur heldur lögfræðilegur, og það verði svo stjórnmálamannanna að meta hvernig veður skipast í lofti. Samkvæmt heimildum Fréttastofu Stöðvar 2 telja margir þingmenn Framsóknarflokksins að ríkisstjórnin ætti að afturkalla frumvarpið og bíða með málið. Hjálmar Árnason formaður þingflokks Framsóknarflokksins segir að farið verði yfir stöðu mála á þingflokksfundi á mánudag. Fyrr sé ekki hægt að gefa neitt upp um hvort afstaða þingflokksins hafi breyst í málinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja Sjá meira