Alþjóðleg glæpastarfsemi á Íslandi 10. júlí 2004 00:01
Talið er fullvíst að alþjóðlegur glæpahringur standi á bak við tilraun nígerískrar konu til að smygla hálfu kílói af kókaíni til landsins. Sams konar mál hafa komið upp í nágrannalöndunum undanfarnar vikur. Konan var handtekin í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, aðfararnótt fimmtudagsins, þegar fundust á henni 155 grömm af kókaíni, innan klæða. Hún var send í röntgenmyndatöku og kom þá í ljós að hún hafði einnig gleypt hylki með um 330 grömmum af efninu. Söluandvirði kókaínsins gæti verið hátt í 30 milljónir króna, ef það er vel hreint. Konan, sem er um þrítugt kom hingað til lands með Flugleiðavél frá Kaupmannahöfn. Til Danmerkur hafði hún komið frá Spáni og hugsanlega enn lengra að. Ekki er vitað hvar hún tók fíkniefnin, en hinsvegar er enginn vafi á að þeim var ætlað að fara til Íslands, þar sem konan átti ekki bókað far aftur til Kaupmannahafnar fyrr hinn þrettánda þessa mánaðar. Hún var lögð inn á sjúkrahús hér á landi, og hefur þar verið að skila af sér kókaínhylkjunum sem hún gleypti. Þetta er í annað skipti á skömmum tíma sem kona frá Afríku er tekin fyrir eiturlyfjasmygl til Íslands. Hinn tíunda júní síðastliðinn var kona frá Sierra Leone, handtekin í Leifsstöð, með yfir 5000 E-töflur. Eyjólfur Kristjánsson, lögfræðingur hjá Sýslumannsembætinu, í Keflavík, sagði í samtali við fréttastofuna, að þessi tvö mál tengist ekki. Hinsvegar sé verið að rannsaka hvort kókaínsmyglið tengist öðrum eiturlyfjamálum. Eyjólfur sagði að þarna væri augljóslega um að ræða alþjóðlega glæpastarfsemi, og að undanfarnar vikur hafi verið að koma upp svipuð mál í löndunum í kringum okkur.
Fréttir Innlent Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira