Innlent

KB banki hækkar óverðtryggða vexti

KB banki hefur ákveðið að hækka vexti óverðtryggðra inn- og útlána frá og með 11. júlí. Vaxtabreytingin er gerð í kjölfar tilkynninga Seðlabankans um hækkun stýrivaxta nú um mánaðarmót. Vextir óverðtryggðra útlána hækka um 0,25 til 0,50%. Þannig hækka kjörvextir óverðtryggðra skuldabréfa úr 8,40% í 8,90%. Vextir óverðtryggðra innlána hækka um allt að 0,40%, mismunandi eftir innlánsformum. Bankinn breytir ekki vöxtum verðtryggðra inn- og útlána.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×