Rannsókn þokast hægt 8. júlí 2004 00:01
Lögregla leitar ekki skipulega að konunni, sem hefur verið saknað frá því snemma á sunnudagsmorgun, enda vita menn ekki hvar þeir eiga að bera niður. Rannsókn lögreglu þokast hægt en þó nokkuð margir hafa verið yfirheyrðir og rannsókn á heimili mannsins, sem nú situr í gæsluvarðhaldi á Litla Hrauni, var fram haldið í dag - þriðja daginn í röð. Vísbendingar á vettvangi benda til voðaverks. Blóð hefur fundist í og við heimili mannsins, sem og í jeppabifreið í hans eigu. Rannsóknin er því ekki lengur eingöngu bundin við Stórholt því grunur leikur á að konan hafi verið flutt annað í bifreiðinni. Hvert bifreiðinni var ekið er ekki vitað Maðurinn, sem er fyrrverandi sambýlismaður konunnar og barnsfaðir, neitaði því að eiga þátt í hvarfi hennar við yfirheyrslur í gær. Þau sönnunargögn sem lögregla lagði þá fyrir dómara nægðu til þess að hann var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna rökstudds gruns um að hann tengdist málinu og hefði vitneskju um afdrif konunnar. Hann var ekki yfirheyrður í dag. Konan fluttist hingað til lands ásamt tveimur börnum sínum frá Indónesíu fyrir nokkrum árum. Hún á ungt barn með manninum sem nú situr í gæsluvarðahaldi. Á síðasta ári var maðurinn sýknaður af ákæru um að hafa ráðist á hana. Eftir að þau slitu samvistum hefur hún m.a. búið í húsnæði á vegum Félags einstæðra foreldra og í Kvennaathvarfinu. Börn konunnar dvelja nú hjá ættingjum en síðast er vitað um ferðir hennar þegar hún átti samskipti við manninn í íbúðinni í Stórholti á sunnudag.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira