Varað við þunglyndislyfjum 7. júlí 2004 00:01 "
Það hefur verið mikil umræða um þessi svokölluðu SSRI þunglyndislyf erlendis og að vel athuguðu máli ákváðum við að senda læknum þessa áminningu," segir Sigurður Guðmundsson, landlæknir. Embætti hans hefur í samvinnu við Lyfjastofnun sent öllum læknum á landinu dreifibréf vegna þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað vegna hættu á notkun ákveðinna þunglyndislyfja meðal barna og unglinga. Er þar brýnt fyrir læknum landsins að ekki skuli ávísa lyfjum sem þessum nema brýna nauðsyn beri til vegna alvarlegs þunglyndis og þá aðeins gegn því að fylgst verði afar grannt með sjúklingnum í framhaldinu. Enn fremur er varað sterklega við því að hætta lyfjameðferð mjög snögglega þar sem sjúklingar hafi sýnt alvarleg fráhvarfseinkenni. "Þetta gerum við í framhaldi af umræðu sem orðið hefur í Bandaríkjunum og Evrópu. Athuganir bæði lyfjayfirvalda í Bandaríkjunum og Bretlandi eru áþekkar hvað varðar virkni ákveðinna tegunda þessara lyfja gagnvart þunglyndi en upplýsingar bentu líka til að um aukna tíðni sjálfsvígshugsana væri að ræða hjá börnum og unglingum." Þar er um að ræða lyfin Citalopram, Paroxetine, Sertraline og Venlafaxine og hafa breskir læknar verið varaðir við notkun þeirra. Sigurður segir að langur vegur sé frá því að hugsa um sjálfsvíg og gera alvöru úr því. "Það hefur ekki verið sannað að sjálfsvíg hafi orðið meðal þeirra barna og unglinga sem þátt tóku í rannsóknum á lyfjunum og ekki má gera lítið úr því að þessi lyf virka mjög vel á þunglyndi en með þessu bréfi er eingöngu verið að brýna fyrir læknum að fara að öllu með gát. Við fórum vandlega yfir allar þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á þessum lyfjum og erum einfaldlega að koma þeim upplýsingum áfram þar sem þær gagnast mest." Í dreifibréfi því sem læknar hafa nú fengið er þeim tilmælum beint til þeirra að ákveðin SSRI lyf séu eingöngu notuð sem hluti af almennri heilstæðri meðferð. Varast skal að nota Paroxetine og Venlafaxine hjá börnum og unglingum og nota fremur önnur lyf úr sama flokki. Ekki skal ávísa SSRI lyfjum nema um alvarlegt þunglyndi sé að ræða og fylgja þarf sjúklingum þétt eftir.
Fréttir Innlent Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira