Innlent

Dómur í fíkniefnamáli

Liðlega þrítugur maður var dæmdur í 30 daga óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi í dag fyrir fíkniefnabrot. Maðurinn framdi brotin í fyrra og hitteðfyrra og var hann meðal annars fundinn sekur um ræktun tuga kannabisplantna. Auk þess fannst í vörslu hans nokkurt magn af amfetamíni, hassi og maríjúana. Ákærði játaði fyrir dómi það sem honum var gefið að sök og var tekið tillit til þess við ákvörðun refsingar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×