Innlent

Davíð fundar með Bush

Davíð Oddsson, forsætisráðherra hittir nú skömmu eftir hádegi George Bush Bandaríkjaforseta á fundi í Hvíta húsinu. Þar hyggjast þeir ræða framtíð varnarsamstarfs Íslendinga og Bandaríkjamanna. Vonir standa til að línurnar skýrist á fundinum og að framtíðarstefna Bandaríkjamanna liggi endanlega fyrir að honum loknum. Sú stefna hefur hingað til verið á þá leið að kalla bæði þotur og þyrlur heim frá Keflavíkurstöðinni og draga stórlega úr umsvifum þar í tengslum við breyttar áherslur Bandaríkjahers í Evrópu. Þaðan hafa tugir þúsunda hermanna verið kallaðir heim.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×