Innlent

Eldur í sófa

Vegfarandi sem átti leið eftir Miðholti í Mosfellsbæ í gærkvöldi, sá hvar eldur logaði inni í stofu á húsi við götuna. Hann hringdi þegar í neyðarlínuna og urðu lögreglumenn fyrstir á vettvang. Þeir höfðu snör handtök og báru logandi sófa út á götu svo að eldurinn næði ekki að dreifa sér, en hann logaði eingöngu í sófanum. Slökkviliðið reykræsti húsið. Húsráðendur voru ekki heima og eru eldsupptök ókunn, nema hvað líklegt þykir að hann hafi kviknað út frá sígarettuglóð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×