Fara ekki fram á opinbera rannsókn 5. júlí 2004 00:01
Félag heyrnarlausra ætlar ekki, að svo stöddu, að fara fram á opinbera rannsókn á því hversu mörg heyrnarlaus börn hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi. Talskona Stígamóta segir að nýlegur dómur í máli gegn heyrnarlausum manni, feli í sér alvarleg skilaboð út í samfélagið. Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í síðustu viku heyrnarlausan manni á fertugsaldri í tveggja ára fangelsi, vegna alvarlegra kynferðisbrota gegn tveimur dætrum sínum. Maðurinn sætti sjálfur kynferðisofbeldi í heimavistarskóla fyrir heyrnarlausa í mörg ár og vegna samúðar var héraðsdómur reiðubúinn að kasta bjarghring til hans með því að skilorðsbinda dóminn að stærstum hluta. Rúna Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir þetta mál staðfesta það sem samtökin vissu, að þeir sem ekki geti borið hönd fyrir höfuð sér, séu í aukinni hættu á að verða fyrir ofbeldi. Hún telur dóminn fela í sér þau alvarlegu skilaboð út í samfélagið, að ofbeldi réttlæti ofbeldi og hún undirstrikar að fullorðið fólk verði að bera ábyrgð á gerðum sínum. Vegna umræðu um meint kynferðisbrot gegn heyrnarlausum einstaklingum, hefur Félag heyrnarlausra sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að það muni ekki, að svo stöddu, fara fram á að opinbera rannsókn á málinu, enda séu flest þau mál fyrnd, sem félagið hafi fengið vitneskju um. Félagið leggur hins vegar áherslu á að greina vandann og hefur þegar hafið undirbúning að því að vinna faglega rannsókn á umfangi hans. Ríkisstjórnin hefur veitt einni milljón króna til þeirrar rannsóknar.
Fréttir Innlent Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira