Innlent

LSH vill skoða tillögur um stokk

Fulltrúar stjórnarnefndar Landspítalans háskólasjúkrahúss segja mikilvægt að skoða allar tillögur um færslu Hringbrautar, þótt framkvæmdir séu þegar hafnar. Stjórnarnefndin hitti í dag fulltrúa Höfuðborgarsamtakanna og Samtaka um betri byggð, sem telja bestu lausnina að setja Hringbraut í 600 metra opinn stokk. Samtökin telja að slíkt kunni að stórauka möguleika á uppbyggingu á Landspítalalóðinni. Þau fullyrða að samgöngunefnd Reykjavíkurborgar hafi gert grófa og ómaklega tilraun til að sverta tillögur þeirra. Borgarráð fjallar um málið á fundi sínum á morgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×